Helena

Foreldra- og uppeldisfræðingur
helena@foreldrafraedsla.is
Helena Rut Sigurðardóttir er eigandi Foreldrafræðslu ehf. hún útskrifaðist árið 2006 með B.ed. í leikskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands. Árið 2019 útskrifaðist hún með MA gráðu í Foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf frá HÍ. Helena hefur áratuga reynslu af vinnu með börnum og starfar í dag í leikskólanum Reynisholti í Reykjavík sem sérkennslustjóri. Hún hefur sótt ýmis hagnýt námskeið eins og PMTO, Reflective Dialogue Parent Education Design (RDPED) eða ígrundaðar samræður foreldra og Grunnmenntun í atferlisþjálfun frá Greininga og ráðgjafastöð ríkisins. Helena kom ásamt fleirum að því að stofna Félag uppeldis- og foreldrafræðara og situr sem stendur í stjórn félagsins. Hún tók þátt í samvinnuverkefni með Heimili og skóla og Háskóla Íslands um meðvituð samskipti með Rakel Guðbjörnsdóttur, þar sem þær héldu saman erindi um meðvituð samskipti.

Rakel

Foreldra- og uppeldisfræðingur
rakel@foreldrafraedsla.is
Rakel er eigandi Foreldrafræðslu ehf. og hefur starfað sem heilsunuddari í yfir 10 ár, sérhæfir sig í meðgöngunuddi og vefjalosun. Hún hefur kennt við Fjölbrautaskólann við Ármúla á heilsunuddbraut síðan 2016. Hún hefur einnig starfað með einstaklingum með þroskafrávik sem hefur gefið henni dýrmæta reynslu. Hún er heilsunuddari að mennt, með B.A. gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri. Í lokaverkefni sínu tengdi hún saman reynsluna sína sem heilsunuddari við heilsutengd lífsgæði. Rakel hefur einnig lokið M.A. námi í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf, í lokaritgerðinni nýtti hún eigin reynslu sem hvatann fyrir gerð námskeiðs fyrir foreldra til að auka meðvitund sína í uppeldishlutverkinu.
Rakel hefur alla tíð haft mikinn áhuga að skilja sjálfan sig, sín viðbrögð og viðhorf og hvernig þau móta hennar samskipti við umhverfið. Hún hefur séð hvað sú skoðun hefur gagnast henni vel sem foreldri og er drifin áfram að styðja foreldra að skoða sig sem fyrirmynd í uppeldi barna sinna. Hún telur viðhorf skipta þar sköpum, hún brennur því fyrir að skapa rými fyrir foreldra að koma saman og þroska viðhorf sín í uppeldishlutverkinu sem hefur svo uppbyggileg áhrif á foreldrið, barnið og fjölskylduna í heild sinni.
Rakel hefur setið ýmis hagnýt námskeið í t.d. Mindful parenting, markþjálfun, Reflective Dialouge Parent Education (RDPED) ígrundaðar samræður foreldra, verndari barna, sáttamiðlun o.fl.

Marta

Félagsráðgjafi
info@foreldrafraedsla.is
Marta Joy Hermannsdóttir starfar sem ráðgjafi hjá foreldrafræðslu ehf. Hún útskrifaðist með MA gráðu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands árið 2013. Lauk PMTO meðferðarmenntun (Parent management therapy Origon) árið 2018 og útskrifaðist með framhaldsmenntun í Markþjálfun frá Profectus árið 2023. Upphaf árs 2024 lauk Marta ACC vottunarferlinu fyrir markþjálfa og er þá vottaður markþjáfi samkvæmt ICF (International coaching federation). Að auki hefur hún sótt ráðstefnur og námskeið til að eflast í starfi ss. HAM (Hugræn atferlismeðferð), TEACCH hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð og Solihull aðferðin svo eitthvað sé nefnt.
Lengst af hefur Marta starfað sem félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg og sinnt þar virkni og fjölskyldumálum. Einnig hefur hún kennt fyrir Reykjavík PMTO námskeið frá árinu 2018 og Spare frá 2023. Marta er fær um að veita ráðgjöf bæði á íslensku og ensku.

usergift linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram